13.02.2020
Engar ferðir á morgun, föstudag vegna veðurs
Í ljósi fyrirhugaðrar veðurspár og siglingar aðstæðna hafa skipstjórar Herjólfs tekið ákvörðun að fella niður ferðir föstudagsins, 14. febrúar. Ákvörðun þessi er tekin með öryggi farþega og áhafnar í huga, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Bilun kom upp í hleðslubúnaði Herjólfs
„Það er rétt að bilun kom upp í sleðabúnaði sem er inn í hleðsluturni sem gerir það að verkum að ekki er hægt að hlaða í augnablikinu í Eyjum.” segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs í samtali við Eyjar.net.
Hann segir að framleiðendur séu með málið til meðhöndlunar. „Ekki liggur fyrir hvenær viðgerð fer fram en vonir standa til að það geti verið fljótlega og þá um leið verði farið í að stilla af búnaðinn í Landeyjahöfn. Sú reynsla sem komin er á siglingu á rafmagni lofar góðu og því mikilvægt fyrir okkur að tafir á viðgerð og lokafrágangi í Landeyjahöfn dragist ekki.” segir Guðbjartur Ellert.
frétt frá eyjar.net og tilkynningu frá Herjólfi / forsíðumynd Hólmgeir Austfjörð