19.06.2020
Anne-Tamara Lorre, sendiherra Kanada á Íslandi og Petur Petersen, ræðismaður Færeyja á Íslandi, áttu í gær fund með Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra og Angantý Einarssyni, framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Til umræðu voru samskipti Vestmannaeyja við löndin tvö, vinabæjartengslin við Gøtu, aukin samvinna í tengslum við viðskipti, rannasóknir, ferðamennsku og menningu. Sendiherrarnir munu verja deginum í Vestmannaeyjum.
Greint er frá þessu á vef Vestmannaeyjabæjar.
Anne-Tamara Lorre, Íris Róbertsdóttir og Petur Petersen. Ljósmynd/Vestmannaeyjar.is