Frá því í ársbyrjun 2019 hefur HSU unnið markvisst að því að hljóta jafnlaunavottun. Samkvæmt launastefnu og markmiðum HSU er stefnt að því að óútskýrður launamunur sé enginn og frávik verði ekki meiri en 5%.
Lögum samkvæmt átti ferlinu að ljúka fyrir áramót 2019/2020. Fyrri hluta úttekt vegna jafnlauna var framkvæmd af BSI 16. desember 2019 og síðari hluta úttekt var framkvæmd af sama aðila 25. febrúar 2020. Í kjölfar þessara úttekta var mælt með því að stofnunin hlyti vottun um jöfn laun. Jafnréttisstofa staðfesti svo að Heilbrigðisstofnun Suðurlands hlyti jafnlaunavottun þann 4. maí 2020.
Þetta kemur fram á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Ljósmynd: Bjarni Sigurðsson