Sunnudagur 15. nóvember 2026

Heilahjálp með fræðslu um heilabilun í Vestmannaeyjum

Heilahjálp – samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) bjóða til opinnar fræðslu um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur í Akóges salnum í
Vestmannaeyjum þriðjudaginn 1. september kl. 18:00. Aðgangur er ókeypis og öll áhugasöm velkomin.

Á fræðslufundunum verður starf samtakanna kynnt og fjallað um þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi góðra samskipta, aukins skilnings og stuðnings við aðstandendur.

Meiri þekking – minni fordómar
Eitt af meginmarkmiðum Heilahjálpar er að auka þekkingu og dýpka skilning á heilabilun og áhrifum hennar á líf einstaklinga og aðstandenda þeirra. Það skiptir sköpum að tala opinskátt um heilabilun. Að segja frá greiningu getur dregið úr kvíða og einangrun, bæði fyrir þann sem greinist og aðstandendur. Með aukinni umræðu getum við einnig unnið gegn fordómum og stuðlað að skilningsríkara samfélagi.

Fræðsluna leiða Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar, og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi hjá samtökunum.
Fundargestir fá aukinn skilning á breyttum aðstæðum, hagnýtar hugmyndir að bættum samskiptum og tækifæri til að fræðast og ræða málefni sem snerta marga.
Fræðslan er ætluð einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öllum  öðrum sem vilja auka þekkingu sína.

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search