Addi í London, ljósmyndari Tíguls, hefur fylgst með lundanum í Vestmannaeyjum frá því hann var smá peyji. Addi hefur bæði veitt lunda í gegnum tíðina og fylgst náið með stofninum, hegðun fuglsins og lífinu í lundabyggðunum.
Í gærkvöldi var Addi á ferðinni um lundabrekkurnar og fylgdist með fuglinum. Það sem fyrir augu bar lofar góðu. Mikið líf var í brekkunum og fuglinn virtist vera í miklu æti.
„Það hefur verið líflegt í lundabrekkunum og eyjunum allt í kring. Fuglinn hefur verið að bera á fullu, svo það lítur allt mjög vel út,“ segir Addi.
Reyndir veiðimenn sjá greinilega fjölgun
Á ferð sinni hitti Addi einnig nokkra reynda lundaveiðimenn sem hafa fylgst með stofninum árum og áratugum saman. Að hans sögn voru þeir sammála um að greinileg breyting hefði orðið til hins betra og að lundinn væri að fjölga sér.
„Eyjafólk sem ég hef hitt segist ekki hafa séð svona mikið af lunda í langan tíma. Ég ræddi líka við nokkra gamla og reynda veiðimenn og þeir voru allir á sama máli – það er mun meira af fugli núna og stofninn virðist vera að stækka til muna,“ segir Addi.
Æti fyrir bæði lunda og pysjur
Það sem skiptir ekki síður máli er að nóg virðist vera af æti við Eyjar. Addi segir fuglinn hafa verið duglegan að bera í holurnar, sem gefi góð fyrirheit um að pysjurnar fái næga fæðu.
„Það virðist vera nægt æti fyrir fuglinn og pysjurnar. Maður sér lundann koma inn með æti og það er mikil umferð í brekkunum. Þegar maður hefur fylgst með þessu frá því maður var peyji finnur maður vel þegar mikið líf er í byggðunum – og núna er virkilega gaman að sjá hvað það er mikið af fugli,“ segir Addi.
Addi segir því ástæðu til bjartsýni miðað við það sem hann sá í gærkvöldi og þær frásagnir sem hann heyrði frá reyndum veiðimönnum.
Myndir: Addi í London / Tígull




























