Sunnudagur 18. október 2026

Hátíðin Fer á Topp fimm

Eins og alþjóð veit fór Þjóðhátíð Vestmannaeyja fram dagana 29.-31. júlí síðastliðinn. Hörður Orri Grettisson, formaður Þjóðhátíðarnefndar sagði, í samtali við Tígul, hátíðina hafa gengið mjög vel og farið að langmestu leyti vel fram. „Veðrið var okkur hliðhollt og hátíðin var vel sótt. Það sást í andlitum gesta hátíðarinnar að fólk hafði saknað hennar og fólk var mætt til að skemmta sér og öðrum,“ sagi Hörður Orri og bætti við. „Þakklæti og stolt er auðvita ofarlega í huga mínum eftir svo vel heppnaða hátíð. Það er meira en að segja það að halda fjölmennustu útihátíð landsins ár eftir ár og til þess þarf margt að spila saman. Ég vill koma á framfæri kærum þökkum til allra gesta, sjálboðaliða, starfsmanna hátíðarinnar, viðbragðasaðila og ekki síst til Eyjamanna því án framlags frá þessum aðilum væri hátíðin ekki eins glæsileg og raunin er. Takk.“

Aðspurður um aðsókn sagði hann þetta á pari við fyrri hátíðir. „Þetta var Þjóðhátíð eins og við þekkjum seinustu árin fyrir Covid, bæði hvað varðar fjölda og framkvæmd. Skipulagið er í föstum skorðum og við vitum hvað virkar og hvað ekki. Alltaf er eitthvað í skipulaginu sem má betur fara og verður það lagað og gert betur að ári. Lokatölur um fjölda liggja ekki fyrir en ljóst að hún fer á topp fimm yfir þær fjölmennustu hingað til.“ 

Á síðasta ári þegar hátíðin mátti ekki fara fram var gripið til þess ráðs að senda lifandi streymi með skemmtun og brekkusöng á sviðinu í Herjólfsdal. Þótti þetta heppnast vel og var því ákveðið að endurtaka leikinn í ár. „Við fórum í samstarfsverkefni við Senu í fyrra með að streyma brekkusöngnum, það gekk mjög vel þá og aftur núna. Þetta er aukaafurð af Þjóðhátíðinni sem þarf ekki mikinn aukakostnað af hálfu félagsins og er komið til að vera,“ sagði Hörður Orri hýr á brá.

Hörður Orri er í þeirri einstöku stöðu að vera einnig framkvæmdarstjóri Herjólfs ohf. Það var því í nógu að snúast hjá honum áfram eftir að hátíðin kláraðist. „Það gekk mjög vel að koma fólki heim, farþegar stóðu þolinmóðir í röð og voru kurteisir í hvívetna. Fullt var í allar ferðir bæði mánudag og þriðjudag, sigld var aukaferð um miðnætti á þriðjudag til að bregðast við eftirspurn,“ sagi Hörður. „Ég vill líka nota tækifærið hér til að hrósa og þakka starfsfólki Herjólfs ohf. sem staðið hefur vaktina.Þau eiga öll sem eitt heiður skilinn fyrir dugnað og ósérhlífni við það að halda uppi þeirri öflugu þjónustu sem við viljum veita,“ sagði Hörður Orri Grettisson að lokum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search