Miðvikudagur 7. júní 2023

„Hann er að kafna úr frekju.“

Mbl.is greindi frá skemmti­legu at­viki sem átti sér stað í apó­teki þar sem starfsmaður sneri vörn í sókn vegna frekju í viðskipta­vini en það var Berg­vin Gísla­son sem varð vitni að því og greinir frá því á facebooksíðu sinni.

Berg­vin sagði í sam­tali við mbl.is að hann vilji ekki gefa upp í hvaða apó­teki þetta hafi gerst. Hann staðfest­ir þó að ekki sé um upp­spuna að ræða, en hann greindi fyrst frá at­vik­inu á Face­book í gær.

Vildi af­greiðslu strax

Seg­ir hann að nokkuð mikið hafi verið að gera í apó­tek­inu og tölu­vert af eldra fólki meðal viðskipta­vina. Hann ásamt fleir­um hafi beðið eft­ir af­greiðslu þegar maður um fer­tugt labbaði inn. Lýs­ing Berg­vins verður að telj­ast nokkuð góð.

„Hár­vör­ur í hár­inu, smá tan, mik­ill rak­spíri, slim­fit galla­bux­ur, rúllukraga­bol­ur og jakki. Og auðvitað grímu­laus.“

Maður­inn gekk því næst beint að af­greiðslu­borðinu og vildi fá af­greiðslu strax. Var hon­um þá bent á að aðrir væru á und­an hon­um og hann gæti því tekið sér miða og sett upp grímu. Kvaðst hann ekki hafa tíma til þess og vildi fá af­greiðslu á und­an þeim sem biðu.

Í andnauð

Stúlk­an sem vann í apó­tek­inu, að sögn Berg­vins senni­leg­ast um tví­tugt, sagði þá við vinnu­fé­laga sinn: „Gæt­ir þú nokkuð hjálpað mér, hann er að fara í andnauð.“

Sam­starfsmaður­inn skildi hvorki upp né ofan í henni fyrr en hún bætti við með ró­lyndistóni:

„Hann er að kafna úr frekju.“

Maður­inn fór, ef marka má færslu Berg­vins, út með „skottið á milli lapp­ana“. Frá­sögn hans má lesa hér fyr­ir neðan.

Forsíðumyndin tengist fréttinni ekki.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is