Í dag tekur ÍBV á móti Stjörnunni í Olís-deild kvenna.
Liðin eru bæði um miðja deild. ÍBV er í fjórða sæti með 5 stig en Stjarnan er í fimmta sætinu með 4 stig úr 4 leikjum.
Það má því búast við hörku leik í íþróttahúsinu í dag.
En eins og þið vitið þá er þá er áhorfendabann í gildi en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð2Sport.
Leikurinn hefst klukkan 13.30.

