Hráefni:
1 poki þurrger
1 kg hveiti
1 tsk salt
6 dl volgt vatn
3 matskeiðar ólífuolíu
Hugmyndir af fyllingu með eða án pasta/pizzusósu eftir smekk:
Afgangar frá pastamáltíð og allskonar osta afgöngum.
Afgangar af kjúklingaréttum, t.d. tikka masala, eða afgang af lambapottrétti. Afgangar af steiktu grænmeti og mozzarella. Eða klassískt álegg sem er þá sveppir, skinka og ostur.
Aðferð:
Blandið fyrst saman þurrefnum og bætið við volgu vatni og olíunni. Hnoðið deigið saman í höndum eða hrærivélinni. Ef það verður of þurrt er bætt við meira vatni. Látið deigið hefast í 20 – 30 mín á eldhúsbekknum.
Þegar deigið hefur hefast er því slegið aðeins saman og skipti í 8 jafnstóra hluta. Hver hluti er flattur út í hring. Setjið fyllinguna á hálfan hringinn. Penslið kantana með vatni eða pískuðu eggi, leggið saman hálfmánana og klípið kantana vel saman til að loka. Penslið hvern hálfmána með ólífuolíu.
Um að gera að nýta afganga sem þú átt í fyllingu.