22.03.2020
Vegna hertra aðgerða gegn Covid-19 verður Bókasafnið lokað frá og með deginum í dag. Okkur þykir þetta mjög leitt en þetta er nauðsynlegur liður í baráttunni við veiruna.
Ekki gengur þó að vera bókarlaus, sérstaklega á tímum sem þessum. Viljum við því bjóða upp á að hægt sé að hringja til okkar (sími: 488-2040) milli 10-12 og 13-17 eða senda okkur skilaboð á Facebook og taka frá bækur. Starfsfólk safnsins tekur bækurnar til, skráir þær á viðkomandi og mun síðan setja bækurnar fram í Einarsstofu, inngang Safnahúss þar sem hægt verður að ná í þær virka daga frá kl 10-12 og 13-17. Bækurnar verða merktar nafni viðkomandi. Einungis verður hægt að skila bókum í lúguna vinstra megin við inngang.
Ekki verða rukkaðar sektir á meðan þessu stendur en við viljum benda á að hægt er að fá lánstíma framlengdan með því að hringja eða senda okkur skilaboð á Facebook.
Við getum því miður ekki hleypt neinum inn í safnið en getum leyst málin tímabundið svona. Við vonum að allir sýni þessu skilning á þessum skrítnu tímum. Við hlökkum til þegar þetta verður allt yfirstaðið. Hjálpumst öll til að leggja okkar af mörkum þangað til.
Starfsfólk Safnahúss