23.05.2020
Rétt eins og að undanförnu er hægagangur á útgerð ísfisktogaranna, Vestmannaeyjar VE og Bergeyjar VE vegna kórónuveirufaraldursins. Bæði Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu fullfermi í Vestmannaeyjum sl. mánudag.
Bergey hélt strax til veiða á ný og landaði rúmlega 50 tonnum sl. miðvikudag en Vestmannaey hélt kyrru fyrir í landi. Gert er ráð fyrir að bæði skipin haldi síðan til veiða í kvöld.
Arnar Richardsson rekstrarstjóri Bergs-Hugins, sem gerir út Vestmannaey og Bergey, segist vonast til þess að nú fari að lifna yfir fisksölu erlendis og þá verði hægt að sækja meira og nýta skipin með eðlilegum hætti.
Greint er frá þessu á vef Síldarvinnslunnar.