Hæfileikamótun HSÍ og Bláa lónsins fer fram helgina 11.-12. janúar.
Þar æfa strákar og stelpur fædd 2006 undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar og Rakelar Bragadóttur en þar fá leikmenn smjörþefinn af því hvernig yngri landslið HSÍ æfa hverju sinni.
Við í ÍBV eigum fulltrúa, bæði í drengja- og stúlknahópunum en það eru:
Auðunn Sindrason
Birkir Björnsson
Herdís Eiríksdóttir
Jason Stefánsson
Júnía Eysteinsdóttir
Við óskum þessu flottu fulltrúum ÍBV til hamingju og í leiðinni góðs gengis í þessu verkefni.
Tekið af vef ÍBV.