Vitundarvakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir
Af hverju september?
Þessi árstími er valinn vegna þess að Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september og Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október.
Af hverju gulur?
Gulur er litur sjálfsvígsforvarna.
Af hverju semikomma?
Semikomman (;) er kennimerkið fyrir Gulan september en táknið er víða notað til að sýna samstöðu með geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Það vísar til framhalds; seiglu og vonar.
Gulur dagur – hvað er það?
- Á gulum degi klæðumst við gulu, skreytum með gulu, lýsum með gulu og borðum gular veitingar.
- Við tökum myndir af gulri stemningu, sjálfu eða mynd af vinum, fjölskyldu, samstarfsfólki, skreytingum eða gulum hlutum. Lagt til að deila myndum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gulurseptember og merkja @gulurseptember.
- 10. september er gulur dagur, ef hann lendir á virkum degi. Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10.september.
- Vinnustaðir og skólar geta líka valið annan dag í september til að halda gulan dag, eftir því sem hentar best.
- Allir sem geta eru hvattir til að taka þátt og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir.
Slagorðið: Er allt í gulu?
Þetta slagorð var valið fyrir vitundarvakninguna Gulan september, sem var haldin í fyrsta skiptið árið 2023. Það vísar til samkenndar, þess að láta sig náungann varða og hlúa saman að geðheilsunni.
Ef þér finnst lífið stundum ekki þess virði að lifa því leitaðu þá hjálpar. Sjá upplýsingar um hvar er hjálp að fá hér.
Ef þú hefur áhyggjur af ástvini/vini/vinnufélaga ræddu það við viðkomandi.
Það hjálpar að deila líðan sinni með öðrum.



