Á ný er komin á gul veðurviðvörun. Suðvestan 13-20 m/s og talsverð él. Viðbúið að hvassara verði í éljahryðjum og gætu vindhviður farið yfir 35 m/s staðbundið.
Skafrenningur og auknar líkur á eldingum. Líkur á samgöngutruflunum og foktjóni. Mikil ölduhæð er spáð á miðunum suður af landinu, allt að 18 m en ölduhæð við ströndina nær hámarki í kvöld, og fram á þriðjudag og er spáð 10-12 m.
Klukkan 22 í kvöld er spáð 24 m/s má þá búast við kröftugum vindhviðum.

