08.01.2020 kl 22:30
Þetta ætlar að vera sagan endalausa með þessar blessuðu lægðir sem ganga yfir landið, næsta lægð skellur á kl 06:00 í fyrramálið og á að standa yfir til kl 17:00 á morgun. Við erum orðin nokkuð vön er það ekki ? Þið vitið hvað á að gera.
Á vef vedur.is er greint frá þessum tíðindum og þessi myndarlega skjáskotsmynd tekin.
Suðvestan hríð með vindhraða á bilinu 15 til 23 m/s og éljagangi, hvassast við ströndina. Takmarkað eða lélegt skyggni í éljum og versnandi akstursskilyrði. Afmarkaðar samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar, einkum á Hellisheiði. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með færð á vegum.

