Miðvikudagur 27. september 2023
handbolti

Guðmundur landsliðsþjálfari hefur valið þá 28 leikmenn sem koma til greina á EM í janúar – 3 úr liði ÍBV

Okkar menn, sem tóku þátt í síðasta verkefni, eru á sínum stað í hópnum. Elliði Snær Viðarsson, Kári Kristján Kristjánsson og Kristján Örn Kristjánsson eru allir í þessum 28 manna hópi og eiga því möguleika á að vera í lokahópnum á EM, sem haldið verður í Austurríki, Danmörku og Svíþjóð í janúar.

Æfingar liðsins hefjast 22. desember nk. og mun landsliðið æfa hér heima milli jóla og nýárs og allt þar til það heldur til Þýskalands 3. janúar. Þar munu strákarnir okkar leika gegn Þjóðverjum í Mannheim þann 4. janúar.

Eftir vináttuleikinn gegn Þjóðverjum kemur liðið aftur heim og æfir þar allt þar til liðið fer á EM þann 9. janúar. Fyrsti leikur liðsins á EM verður laugardaginn 11. janúar gegn Dönum í Malmö.

Við óskum strákunum til hamingju með valið og í leiðinni góðs gengis í þessu verkefni!

Áfram ÍSLAND!

Eftirfarandi leikmenn eru í 28 manna hópnum:

Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson Hamburg 84/6
Ágúst Elí Björgvinsson IK Sävehof 31/0
Björgvin Páll Gústafsson Skjern 221/13
Viktor Gísli Hallgrímsson GOG 9/0

Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson Lemgo 63/141
Guðjón Valur Sigurðsson PSG 356/1853
Oddur Grétarsson Balingen-Weilstetten 18/31

Vinstri skytta:
Aron Pálmarsson Barcelona 141/553
Elvar Ásgeirsson TVB 1898 Stuttgart 0/0
Ólafur Andrés Guðmundsson Kristianstad 115/215

Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson Skjern 26/80
Gísli Þorgeir Kristjánsson Kiel 23/31
Haukur Þrastarson Selfoss 12/15
Janus Daði Smárason Aalborg 37/41

Hægri skytta:
Alexander Petersson Rhein-Neckar Lowen 173/694
Kristján Örn Kristjánsson ÍBV 7/13
Teitur Örn Einarsson Kristianstad 18/18
Viggó Kristjánsson Wetzlar 2/3

Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson Bergischer 105/311
Óðinn Þór Ríkharðsson GOG 13/42
Sigvaldi Björn Guðjónsson Elverum 20/37

Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson GOG 45/65
Elliði Snær Viðarsson ÍBV 6/4
Kári Kristján Kristjánsson ÍBV 137/162
Sveinn Jóhannsson SönderjyskE 7/14
Ýmir Örn Gíslason Valur 33/14

Varnarmenn:
Daníel Þór Ingason Ribe Esbjerg 30/9
Ólafur Gústafsson Kolding 43/48

Tekið af heimasíðu ÍBV handboltans.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is