Föstudagur 13. nóvember 2026

GRV hleypur Ólympíuhlaup ÍSÍ í dag

Nemendur GRV hlaupa Ólympíuhlaup ÍSÍ í dag. Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur nú tekið við af Norræna skólahlaupinu sem hefur verið hluti af skólaíþróttum síðan 1984.  Upphitun hefst kl. 10.00 við Íþróttamiðstöðina og er ræst þaðan kl. 10.20. Foreldrar sem hafa tök á, eru hvattir til að hlaupa með eða mæta og hvetja börnin áfram.

Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Góð þátttaka hefur verið í hlaupinu frá upphafi og er það fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla á landinu. Ólympíuhlaupið er liður í Íþróttaviku Evrópu og er hlaupið formlega opnað í einum skóla ár hvert.

Þrír skólar, sem ljúka þátttöku í hlaupinu fyrir 10. október og skila inn upplýsingum til ÍSÍ eru dregnir út. Hver þeirra þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search