Vísbendingar eru um COVID-smit í áhöfn Kap II VE-7 og þess vænst að niðurstöður skimunar leiði í ljós síðar í dag eða í kvöld hvort veikindin skýrist af veirunni eða einhverju öðru.
Skipið var að veiðum þegar grundsemdir vöknuðu um veirusmitið. Það kom til Grundarfjarðar í morgun og tekin voru sýni sem fá flýtimeðferð í rannsókn.
Áhöfnin er í sóttkví um borð og verður ekki landað úr skipinu á meðan beðið er niðurstöðu skimunar.
Alls átta manns í áhöfn Kap II VE-7 hafa einhver veikindaeinkenni en mismikil og líðan þeirra er sögð bærileg. Fimm hafa engum einkennum lýst.
Greint er frá þessu á vef Vinnslustöðvarinnar.
Forsíðumyndin er reyndar af Kap VE ekki Kap II VE-7


