Slökkviliðið var ræst út rúmlega níu í gærkvöldi þegar tilkynnt var um mikin reyk sem kæmi frá athafnasvæði sorpeyðingarstöðvarinnar.
Þegar að var komið reyndist eldur vera á tveimur stöðum á svæðinu, annar vegar í bíl sem stóð einn á miðju plani á neðra geymslusvæði og hins vegar í papparusli í nokkurra metra fjarlægð frá bílnum.
Þarna fór betur en á horfðist í fyrstu og bjargaði þar miklu að bíllinn stóð fjarri öðru brennanlegu efni og því lítil hætta á að eldurinn næði að breiða úr sér.
Slökkvistarf gekk hratt og vel og er lögregla með málið til rannsóknar.
Greint er frá þessu á facebooksíðu slökkviliðs Vestmannaeyja.


