Grískar kjötbollur
(fyrir 4)
Hráefni:
1 kg blandað hakk (naut og svín)
100g hveiti
1 egg
1/2 dl mjólk
100g fetaostur
50g svartar ólífur
50g saxaður laukur
4 geirar hvítlaukur
2 tsk piparmix
1 tsk salt
Mynta eftir smekk
Aðferð:
Hrærið saman hakki, eggi, mjólk og kryddi. Þegar hakkblandan er orðin vel hrærð er hveitinu stráð yfir meðan hrært er.
Lauknum, ólífunum og fetaostinum er blandað saman við og hrært.
Næst er þetta formað í litlar bollur.
Má steikja á pönnu eða skellt í bakaraofninn.
Köld agúrku sósa
Hráefni:
200g grísk jógúrt
200g mæjones
1 msk hunang
1/2 agúrka
1/2 rauðlaukur
2 geirar hvítlaukur
2 msk söxuð steinselja
salt og pipar
Aðferð:
Mæjonesinu er hrært og grísku jógúrtinni bætt saman við. Hvítlaukur pressaður og settur út í. Hunanginu bætt við. Agúrkan rifin og rauðlaukur smátt saxaður og öllu hrært saman. Að lokum er steinseljan sett út í og salt og pipar.
Volgt kartöflusalat
Hráefni:
400g af soðnum kartöflum
bolli af skornum blaðlauk
1 dl Relish
3 msk Capers
1/2 rauðlaukur
1 vorlaukur
2 geirar hvítlaukur
1 dl ólífuolía
3 msk eplaedik
fersk steinselja
dill
salt og pipar
Aðgerð:
Kartöflurnar soðnar, skrældar og skornar niður í bita.
Allt nema kartöflunum skellt á pönnu og hitað upp. Ekki látið sjóða.
Þessu er hellt yfir kartöflurnar og blandað varlega saman.
Má vera kalt eða borið fram volgt.