16.11.2020 kl 18:42
Börn í 5. – 7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og 2 metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn.
Grímuskylda kennara gagnvart þessum börnum verður einnig afnumin. Skýrt verður kveðið á um að á útisvæðum leik- og grunnskóla séu engar kröfur sem hindra blöndun hópa, né kröfur varðandi fjöldatakmarkanir, nálægðartakmarkanir eða grímunotkun.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þetta í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Greint er frá þessu inn á vef Heilbrigðisráðuneytisins rétt í þessu.