Gratíneraður fiskur með camembert
hráefni:
800 gýsa skorin í bita (7-800 g)
3 paprikur, skornar smátt (2-3)
1⁄2blaðlaukur, smátt skorinn
250 mlrjómi f
1⁄2askja smurostur með papriku
1 Camembert, skorinn í bita
1 tsk.dijon sinnep
1 tsk.paprikukrydd
1⁄2 grænmetisteningur
rifinn gratínostur, handfylli
Aðferð:
- Hitið ofn í 180 gráður.
- Skerið ýsuna í bita og saltið aðeins.
- Leggið í smurt eldfast mót.
- Skerið grænmetið og setjið til hliðar.
- Bræðið saman í potti rjómann, smurostinn og helminginn af camembert ostinum, ásamt dijon sinnepi, paprikukryddi og grænmetisteningi.
- Smakkið til með svörtum pipar.
- Hellið sósunni yfir fiskinn.
- Dreifið grænmetinu því næst yfir og toppið með rifnum osti og restinni af camembert ostinum, skornum í litla teninga.
- Bakið í um það bil 20 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn og osturinn gullinbrúnn.


