Götugrillhátíð um verslunar­manna­helgina í Eyjum

30.07.2020

Hverfisgrillhátíð sem fer fram í Vestmannaeyjum um helgina verður með svipuðu sniði og Hvítu tjöldin svokölluðu sem alla jafnan er tjaldað í Herjólfsdal á Þjóðhátíð. Fjölskyldur muni tjalda hvítum tjöldum á túni í miðju hverfinu segir Grétar Þór í samtali við visir.is sem er jafnframt skipuleggjandi grillhátíðarinnar í Búhamrinum.

„Þetta endar í að við verðum 180 á laugardaginn. Hverfið er þannig að í miðjunni er tún og þar ætlum við að tjalda, þetta ættu að verða vona 14 til 15 tjöld í þyrpingu. Svo fæðast alltaf fleiri og fleiri hugmyndir og við ætlum að gera þarna Þjóðhátíðargötu,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, skipuleggjandi og forstöðumaður íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja.

Yfir daginn verður þétt dagskrá fyrir börn og fjölskyldufólk, hoppukastalar, andlitsmálning og ratleikur fyrir krakkana. Um kvöldið tekur svo við grill og seinna verður kvöldvaka. „Þá er bara spjall og fjölskylduvæn skemmtun,“ segir Grétar.

Hann segist ekki hafa áhyggjur af smithættu þrátt fyrir fjölgun kórónuveirusmita undanfarna daga. Fólk passi upp á sóttvarnir og hvort annað. „Við verðum innan fjöldatakmarkana og við fylgjum bara yfirvaldinu.“

„Hérna í Vestmannaeyjum þá labbarðu bara á hljóðið“

Þá viti hann ekki af fleiri hverfishátíðum sem standi til en fjöldi fólks ætli að tjalda í görðum sínum og bjóða upp á kaffi og með því. „Ég veit alveg til þess að þetta verður mikið í heimahúsum þar sem fólk er kannski að tjalda í garðinum einu til þremur tjöldum og svo verður spilað væntanlega á gítar og svoleiðis. Hérna í Vestmannaeyjum þá labbarðu bara á hljóðið. Ég á von á því að það verði svolítið um það,“ segir Grétar.

„Á laugardaginn verður setningarkaffi og fjölskyldurnar eru svolítið í sínu tjaldi, þá er bara eins og venjan er, kaffið og terta. Þetta er svolítið í anda hvítu tjaldanna sem eru alltaf í Herjólfsdal.“

Hann segist ekki eiga von á því að margt fólk utan hverfisins eigi eftir að koma en þó geti það vel verið. „Ég hugsa að öll eyjan þekki vel einhverja sem verða þarna þannig að ég á alveg von á því að fólk líti við. Það er kannski ekkert öðruvísi en venjulega þegar maður er með tjald. Það verða tjöld í görðunum og innlit, fólk að koma í kaffi og heilsa upp á mannskapinn.“

Eins og þekkt er orðið var Þjóðhátíð í Eyjum aflýst og segir Grétar það mikinn missi fyrir marga. „Þetta er eins og okkar áramót, maður byrjar alltaf að hlakka til næsta árs um leið og Þjóðhátíð klárast.“

Hópur Eyjamanna tók sig til og fjármagnaði brennuna sem er ár hvert á Fjósakletti. Brennan fer því fram á föstudag. „Maður á ekki von á gríðarlegum fjölda þá enda er niðri í dal bara opið svæði og fólk sér tendrunina og labbar heim.“

Forsíðumynd Halldór B. Halldórsson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is