27.03.2020
Gott veitingarstaður ætlar að bjóða Vestmanneyingum upp á samskonar þjónustu og Eldum rétt í bænum sem ber nafnið eldum GOTT heima.
Þetta eru tilbúnir matarpakkar með hráefni,uppskrift og leiðbeiningum sem fólk panta með lágmark dags fyrirvara og keyra þau pakkanum heim til ykkar.
Allar upplýsingar eru hér fyrir neðan og einnig matseðill næstu viku. Matseðilinn verður einnig alltaf inn á tigull.is
Þau eru byrjuð að taka niður pantanir á gott@gott.is og í síma 481-3060
Látum fylgja með tilkynningu frá GOTT fjölskyldunni af facebooksíðu sinni: Þegar þið pantið heimsent viljið þið vera svo væn að setja stól eða eitthvað fyrir utan til þess að hægt sé að leggja frá sér og koma þá í veg fyrir óþarfa snertingu, allt til þess að við getum vandað okkur á þessum einkennilegu tímum.
Við að sjálfsögðu bönkum/ dinglum og göngum í skugga um að þið komið til dyra eftir matnum ?