Ísfisktogarinn Bergey VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum fyrir hádegi í gær með fullfermi að aflokinni sex daga veiðiferð. Skipstjóri var Ragnar Waage Pálmason og ræddi tíðindamaður Síldarvinnslunnar við hann í gærmorgun.
„Jú, við erum á landleið með góðan afla en því miður fengum við í aðra skrúfuna í lokaholinu. Það er fúlt að fá í skrúfuna en nú er svo sannarlega gott að hafa tvær vélar og tvær skrúfur. Við siglum á sjö til átta mílna ferð á annarri skrúfunni og nálgumst Eyjarnar hratt og örugglega. Í þessum túr vorum við mest að fiska í Skaftárdýpi og Skeiðarárdýpi og fengum þar blandaðan afla.
Aflinn er mest ýsa en einnig dálítið af þorski, ufsa, lýsu og karfa. Veðrið í þessari veiðiferð var hundleiðinlegt allan tímann, samfelld norðaustan bræla. Yfirleitt voru þetta 20-25 metrar en í fyrradag dúraði svolítið, þá voru bara 15. Þegar veðrið lét sem verst þurftum við að flýja upp að landinu,“ segir Ragnar.

Á forsíðumynd er Ragnar Waage í brúnni á Bergey VE