Jón Örvar van der Linden eða Jónsi eins og flestir þekkja hann hefur verið ráðinn sem rekstarstjóri Húsasmiðjunnar í Vestmannaeyjum. Hann tók við 1. október síðastliðinn af Þórhildi Rögnu Karlsdóttur sem er nú rekstarstjóri timburlager Húsasmiðjunnar í Reykjavík.
Jónsi fæddist í Danmörku en ólst upp á Akureyri. Hann er með mikla reynslu í þjónustu í bygginavöruverslunum en hann hóf störf í byggingavöruversluninni Skapta á Akureyri aðeins 21 árs. Hann hefur því starfað í geiranum í rúm þrjátíu ár.
Hann flutti til Vestmannaeyja 2012 ásamt eiginkonu sinni og barni. En hann er kvæntur Lind Hrafnsdóttur og eiga þau tvo drengi, þá Rómeó og Hrafn. En fyrir á hann dótturina Herdísi Lind.
Húsasmiðjan var þá að setja upp nýja verslun við Græðisbraut og var hann fenginn til að taka þátt í því.
Hvaðan kemur eftirnafnið van der Linden?
Pabbi minn fæddist í Rotterdam, Hollandi og bar þetta eftirnafn. Ég tók þetta nafn upp þegar lögin á Íslandi breyttust og leyfðu þetta. En börnin mín bera einnig þetta eftirnafn.
Hvernig leggst starfið í þig?
Þetta er krefjandi en skemmtilegt starf. Þetta er töluvert öðruvísi en að vera eingöngu í að þjónusta viðskiptavini í versluninni. Það er alltaf gott að breyta aðeins til og takast á við nýjar áskoranir.
Hvernig er vöruúrvalið í samanburði við aðrar Húsasmiðjuverslanir?
Þetta er töluvert minni verslun svo vöruúrvalið takmarkast við plássið. Fólk getur pantað vöru hjá okkur í vefverslun og fengið að sækja til okkar og er þá flutningurinn innifalinn.
Hvað eru margir starfsmenn í Húsasmiðjunni í Eyjum?
Það eru sex starfsmenn fastráðnir og svo er ég með 4-5 sem eru helgar- og íhlaupastarfmenn.
Hvenær koma jólin í Húsasmiðjuna í Eyjum?
Jólin eru mætt. Við erum búin að stilla upp öllu sem er komið til okkar en bíðum enn eftir fleiri vörum úr Reykjavík og enn eru vörur á leiðinni að utan.
Má eiga von á einhverjum nýjungum?
Við erum að fá nýjan málningarlitastand þar sem að má finna stærri og fleiri litaprufur. Þá getur fólk tekið með sér stærri prufur af nokkrum litum sem verið er að spá í.
Uppáhalds verkfærið?
Plankastrekkjari
Er eitthvað eftirminnilegt sem þú hefur lent í?
Það kom kona til í mín í verslun, sem ég var að vinna í, á höfuðborgarsvæðinu og spurði hvort við ættum eitthvað stampt til að setja undir rúmfæturnar því að rúmið væri svo mikið á hreyfingu. Konan varð frekar skömmustuleg þegar hún áttaði sig á því hvað hún væri að biðja um.

