Göngumessa á goslokum var á sínum stað í ár
Gengið var frá Landakirkju að krossinum við Eldfell og þaðan niður í Stafkirkju þar sem boðið var upp á súpu að hætti Einsa Kalda. Séra Viðar prédikaði, Guðni í hvítasunnukirkjunni leiddi bænahald, kirkjukórinn söng og Óli Snorra, Flóvent og Einar spiluðu á hljóðfæri undir.
Við bættum hér við myndbandi frá Halldóri B. Halldórsyni.























