Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs kynnti skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnir verkefnið Brúkum bekki og fyrstu leiðir sem verða útbúnar. Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir og Thelma Rós Tómasdóttir höfðu frumkvæði að innleiðingu verkefnisins í Vestmannaeyjum.
„Félag Íslenskra Sjúkraþjálfara (FÍSÞ) varð 70 ára árið 2010. Í tilefni þess ákváðu sjúkraþjálfarar að fara af stað með samfélagsverkefni, sem hvatningu til aukinnar hreyfingar, til hagsbóta fyrir almenning.“ Verkefnið hvetur til hreyfingar með því að skipuleggja stuttar og skemmtilegar gönguleiðir, færar flestum, þar sem vegfarendur geta treyst á að geta hvílst á bekki með um 250 m millibili.
Fyrstu tvær leiðirnar sem ráðast á í eru um um 1 km á lengd. 8 bekki þarf til að útbúa leiðirnar. Kvenfélagið Heimaey mun styrkja Vestmannaeyjabæ um fimm bekki. Leitað verður styrktaraðila fyrir þá 3 sem vantar. Vestmannaeyjabær aðstoðar við að flytja bekkina til Vestmannaeyja og koma þeim fyrir.

