Gönguhópurinn Álfarnir er hópur eldri borgara sem ganga að meðaltali 8 km tvisvar í viku
Bjarni Sighvatsson er einn af gönguhópnum Álfarnir sem var á göngu upp á Stórhöfða þegar Tígull átti leið hjá. Við að sjálfsögðu tókum tal á Bjarna og þá kom í ljós að hann er fæddur og uppalinn Vestmannaeyingur. Hann bjó í Vestmannaeyjum í 55 ár, en þá ákvað hann að skrifa nýjan kafla í lífinu og flutti á Kjalarnesið en það eru komin um 17 ár síðan.
Það þekkja nú flestir þetta nafn, Bjarni Sighvatsson en Bjarni útskýrir að það voru nú tvær ættir á hans tíma hér. Sighvatur Bjarnason sem var Vinnslustöðvarættin í útgerðinni og Bjarni Sighvatsson sem var í Útvegsbankanum. Oftar en ekki var þeim ruglað saman og hann fékk oft jólakortin sem Bjarni í Ási átti að fá og öfugt sem þeir hlógu nú bara af.
Gönguhópurinn Álfarnir eru eldri borgarar úr Reykjavík sem ganga saman tvisvar í viku og um það bil átta kílómetra í senn. Það var hugmynd frá Jónasi Sigurðssyni að koma til eyja. Jónas er einn stofnenda pæju- og pollamótanna hér í Eyjum. Þau eru að njóta eyjanna í tvo daga en þetta er seinni dagurinn.
Daginn áður gengu þau upp á og í kringum Eldfell, kíktu í Eldheima og skoðuðu nýju vatnsstöðina. Í dag röltu þau inn í dal og kíktu á Kaplagjótu og gengu svo upp með Hamrinum upp á Stórhöfða þar sem Tígull hitti á hópinn. En þau voru þá á leið út að borða á GOTT svo kíktu þau í Sagnheima. Það er ekki að sjá að hópurinn sé eldri borgarar en alls eru þau 19 saman í þessari ferð.
Í hópnum eru fjórir Vestmannaeyingar, þeir Jónas Sigurðsson, Eiríkur Þór Einarsson, Bjarni Sighvatsson og Guðjón Scheving. Jú og einn heimamaður slóst í hópinn hann Jói Listó.



