02.12.2020
Fyrir bæjarráði lá erindi Golfklúbbs Vestmannaeyja dags. 15. nóvember sl.,
Þar sem óskað er eftir viðbótarfjárveitingu frá Vestmannaeyjabæ að upphæð 10 m.kr. fyrir árið 2021, til þess að ráðast í lagfæringar á aðstöðu kylfinga, svo sem búningsklefa, salerni og bætta aðstöðu fyrir tæki og í ljósi þess að klúbburinn heldur Íslandsmótið í höggleik 2022.
Beiðni þessi um aukafjárveitingu til golfklúbbsins er til viðbótar þeim rúmum 27 m.kr. sem óskað hefur verið eftir í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar til GV á næsta ári.
Bæjarráð hefur fjallað um erindi GV með hliðsjón af undirbúningi fjárhagsáætlunar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2021. Bæjarráð telur ekki hægt að koma að fullu til móts við umrædda beiðni golfklúbbsins, en leggur til að bæjarstjórn veiti aukafjárstyrk í fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 að upphæð 5 m.kr. til þessara framkvæmda að því gefnu að ráðist verði í þær.

