Golfklúbbur Vestmannaeyja er í 8. sæti á top-100 X-factor lista Golf World fyrir meginland Evrópu.
Fimm íslenskir golfvellir eru taldir upp á topp-100 „X-Factor“ lista tímaritsins Golf World fyrir „meginland“ Evrópu, þ.e. utan Bretlandseyja. Tveir vallanna eru á meðal tíu efstu og allir eru í efri helmingnum, þ.e. í efstu 50 sætunum.
Brautarholt er efst íslensku vallanna, í fjórða sæti. Vestmannaeyjavöllur er í því áttunda og Keilir í 35. sæti. Enn fremur, þá prýðir völlurinn í Eyjum forsíðu umfjöllunarinnar.
Athygli vekur að golfvöllurinn í Vík í Mýrdal er í 42. sæti og Sigló í því fimmtugasta. Nýi völlurinn á Siglufirði hefur vissulega fengið nokkra athygli á alþjóðavettvangi, en völlurinn í Vík hefur til þessa ekki fengið jafnmikla athygli.
Tveir vallanna eru hannaðir af Eureka Golf / Edwin Roald, Brautarholt (4) og Sigló (50). Í umfjöllun blaðsins um golfvöllinn á Siglufirði segir að hann „hefði auðveldlega getað verið tuttugu sætum ofar.“
Aðeins tveir vallanna, Vestmannaeyjar og Keilir, hafa átján holur. Brautarholt hefur tólf og Vík og Sigló níu og eru þeir íslensku einu vellirnir á listanum sem ekki hafa 18 holur.
Brautarholt (4.) skákar þarna völlum eins og Le Golf National í París (5.), þar sem keppni um Ryder-bikarinn fór fram 2018 og þar sem golfkeppni Ólympíuleikanna fer fram 2024.
Vestmannaeyjavöllur (8.) er ofar en t.d. Marco Simone á Ítalíu (25.), þar sem keppt verður um Ryder-bikarinn á næsta ári og íslensku vellirnir allir eru þarna framar en golfvellir á borð við Falsterbo (61.), Barseback (63.), Ullna (69.) og Halmstad (73.) í Svíþjóð; The Scandinavian (82.) og Great Northern (86.) í Danmörku, Morfontaine (59.), Fontainebleau (66.) og Chantilly (78.) í Frakklandi; gamli Dem Pedro-völlurinn í Vilamoura í Portúgal (64.) og Sotogrande (83.) á Spáni.
Hér er samantekt yfir röðun íslensku vallanna:
4. Golfklúbbur Brautarholts – Brautarholt Golf Club
8. Golfklúbbur Vestmannaeyja
35. Golfklubburinn Keilir
42. Golfklúbburinn í Vík
50. Golfklúbbur Siglufjarðar / Siglo Golf
Forsíðan á blaðinu.


