Glódís Dúna Óðinsdóttir, leikmaður ÍBV, hefur verið valin í 16 manna hóp U17 ára landsliðs kvenna í handbolta sem tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins í Færeyjum seinni hluta nóvember.
Í Færeyjum mætir íslenska liðið heimakonum, Tyrklandi og Ísrael. Þjálfarar liðsins eru Rakel Dögg Bragadóttir og Arnar Daði Arnarsson
Glódís Dúna var í október í 44 manna æfingahópi sem kom saman til æfinga í landsliðsviku. Úr þeim hópi voru svo valdir þeir leikmenn sem fara utan, og Glódís Dúna er eini fulltrúi ÍBV í lokahópnum.
Flestar í hópnum koma frá HK og Val, en þar eru einnig leikmenn frá Selfossi, Fram, FH, ÍR og Gróttu.
Tígull óskar Glódísi Dúnu innilega til hamingju með valið og góðs gengis í Færeyjum.

