14:00 -15.30, Diskógrímuball Eyverja í Höllinni, miðaverð: 1000 kr en 1500 fyrir systkinin, ath ekki er posi á staðnum.
Jólasveinninn mætir. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá nammipoka frá jólasveininum.
19:00 Þrettándagleði ÍBV og Íslandsbanka.
Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll, tónlist og margt fleira. Gangan hefst við Hánna og gengið verður upp Illugagötu, niður Höfðaveg og að malarvellinum þar sem hinar ýmsu kynjaverur heilsa upp á gesti.
00:00 Höllin, dansleikur
Þrettándadansleikur með hljómsveitinni Nýju föt keisarans, miðaverð 3500 kr
Opið til 04:00 á Lundanum
ÍBV biður fólk að hafa eftirfarandi í huga varðandi daginn í dag:
– hátíðin hefst kl. 19:00 þegar kveikt er á ÍBV kertunum á Molda
– gengið verður Hlíðarveg, upp Illugagötu, niður Höfðaveg og þaðan á Malarvöllinn
– þeir sem að eiga bíla á gönguleiðinni vinsamlegast færið þá af götunum
– ekki er leyfilegt að vera með skotelda í göngunni og uppi á Malarvelli
– öll tröll sem eru á vegum ÍBV íþróttafélags eru innan girðingar upp á velli
– brýnum fyrir unga fólkinu að tröllin eru mörg hver mjög stór og því getur verið mjög hættulegt að hrella þau
– klæðum okkur vel í kvöld því það verður kalt
Hlökkum til að sjá ykkur í göngunni á eftir,
Starfsmenn og sjálfboðaliðar ÍBV íþróttafélags