Glæsilegri Safnahelgi í Vestmannaeyjum er nýlokið og óhætt að fullyrða að vel hafi tekist til. Fjöldi fjölbreyttra viðburða var á dagskránni í ár sem stóð yfir í 11 daga, frá 7. til 17. nóvember. Enn eru dagskrárliðir um næstu tvær helgar sem tengjast 100 ára kaupstaðarafmælinu og Safnahelginni.
Hægt er að sjá dagskrá Safnahelgar í viðburðaskrá Tíguls undir desembermánuði.
Bæjarráð vill senda öllum þeim sem komu að skipulagningu og þátttöku Safnahelgarinnar sínar bestu þakkir og hamingjuóskir með frábæra og metnaðarfulla dagskrá. Þá eru bæjarbúar hvattir til að sækja þá viðburði sem framundan eru.