Árshátíð Grunnskóla Vestmannaeyja var haldin síðastliðið fimmtudagskvöld í Höllinni en það eru áttundi, níundi og tíundi bekkur sem halda árlega árshátíð GRV.
Í ár var þjóðhátíðarþema og má sjá flottar skreytingar í salnum og á borðunum.
Einsi Kaldi sá um matinn en á matseðli var kjúklingur, lambakjöt, kartöflur og tilheyrandi sósur ásamt fersku salati. Í eftirrétt var karamellubrownie með ís.
Kynnar kvöldsins voru Auðunn, Árni Þór og Friðrik.
Skemmtiatriði á kvöldinu: Leó Snær með gítarinn mætti og spilaði nokkur lög, nokkur myndbönd sem að nemendur bjuggu sjálfir voru sýnd, happadrætti, rappteymið Sprite Zero Klan ásamt fleiru.
Það er alltaf hefð fyrir því að kjósa í til hinna ýmsu titla og í ár var engin undantekning á því:
- Bjartasta vonin: Hrafnhildur Ýr Steinsdóttir
- Bros GRV: Hrafnhildur Ýr Steinsdóttir
- Íþróttaálfur GRV: Andri Erlingsson
- Flippkisi GRV: Jón Gunnar Sigurðsson
- Krútt GRV: Jón Gunnar Sigurðsson
- Samfélagsmiðlastjarna GRV: Íva Brá Guðmundsdóttir
- Herra GRV 2021: Birkir Björnsson
- Ungfrú GRV 2021: Íva Brá Guðmundsdóttir



































