Þriðjudagur 17. nóvember 2026

Gjaldtaka fyrir almennt sorp og litað timbur

Borgað þegar hent er, er í lögum um hringrásarhagkerfið og felur í sér að heimili og einstaklingar borga kostnað vegna sorphirðu í hlutfalli við hversu mikið viðkomandi hendir af óflokkuðu sorpi. Afhending endurvinnsluefna svo sem plasts og pappírs verður áfram gjaldfrjáls heimilum. Sveitarfélögum er óheimilt að nota sameiginlega sjóði til að borga niður kostnað vegna sorpmeðhöndlunar og því verður nauðsynlegt að tengja gjöld við magn af sorpi. Fyrir þá sem henda mikið af óflokkuðu sorpi mun breytingin fela í sér aukinn kostnað vegna sorpförgunar en breytingin gæti leitt til sparnaðar fyrir þá sem henda litlu eða eru duglegir að flokka. Þannig mun samfélagið ekki niðurgreiða sorp fyrir aðra og fjárhagslegur hvati myndast til að draga úr úrgangi.

Að henda sorpi á móttökustöð úrgangsefna í Vestmannaeyjum hefur hingað til verið gjaldfrjálst. Á fundi framkvæmda- og hafnaráðs í gær var starfsmönnum sviðsins falið að útfæra svokölluð klippikort fyrir heimili og innleiða um næstu áramót, verður þeim dreift til heimila bæjarins. Þannig verða fyrstu afhendingar almenns sorps og litaðs timburs gjaldfrjálsar en gjöld leggjast á þegar klippikortið er fullnýtt.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search