Miðvikudagur 18. nóvember 2026

Gíslína tekur þátt í verkefninu Solander 250

Sendiráð Svíþjóðar og félagið Íslensk grafík hafa, ásamt fleirum íslenskum ​​samstarfsaðilum, sett af stað verkefni innblásið af leiðangri Solander og félögum sem fór fram árið 1772 á Íslandi.

 Samvinnuverkefnið inniheldur samræður á milli Íslands og Svíþjóðar í gegnum söguna, líffræði, jarðfræði, mannfræði og menningu sem hefur spannað yfir margar aldir. Verkefnið fjallar um sameiginlega fortíð okkar, nútíð og framtíð. Mannkynssagan.

Þetta einstaka verkefni hófst í ágúst 2022 og mun standa í eitt og hálft ár. En að lokum flyst sýningin frá Íslandi til Norður – Svíþjóð, Pedeo heimabæjar Solander.

Listasýning í samstarfi við Íslensk Grafik er hornsteinn hátíðarhaldanna þar sem 10 íslenskir listamenn sækja innblástur í leiðangurinn og ævi Daníel Solander.

 

 

Gíslína Dögg Bjarkadóttir og verk hennar á sýningunni.

 

Hvað getur þú sagt okkur um verkefnið?

Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að í ár eru 250 ár frá því að sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander kom hingað til lands í vísindaleiðangur. Solander skrásetti og safnaði margs konar fróðleik um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð þjóðarinnar. Á sýningunni erum við 10 íslenskir listamenn úr félaginu Íslensk grafík sem túlkum þessa atburði og þær breytingar sem hafa orðið á landi og þjóð síðan.

Samhliða er svo verið að kynna sýninguna Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy, þar sem minnst er ferðar Solanders til Kyrrahafsins árið 1769. Þar eru sýnd verk tíu listamanna frá Kyrrahafssvæðinu en Solander. 

Veg og vanda að þessari sýningu á sænska sendiráðið á Íslandi og í raun má segja að sendiherrann sjálfur Pär Ahlberger sé aðal driffjöðurinn, enda er hann ákaflega áhugasamur um land og þjóð og einstaklega drífandi karakter þar á ferðinni.

 

Hvernig kom það til að þú ert að taka þátt í verkefninu?

Ég var valin úr hópi íslenskra grafíklistamanna á Íslandi, en það var stjórn Íslenskrar grafíkur sem valdi 

fólk til að taka þátt.  Ég ákvað að þiggja boðið og við tók mikil rannsóknar og undirbúningsvinna, sem ég gerði mér svo sem ekki alveg grein fyrir í upphafi að yrði svona mikil.  

 

Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að taka þátt?

Ég er tiltölulega ný byrjuð í grafík eða hef verið í henni í 5 ár og þess vegna er það vissulega mikil heiður að fá að vera með í þessu stóra verkefni.  

Valgerður Björnsdóttir, Gíslína Dögg og Soffía Sæmundsdóttir.

 

Hvað er svo framundan hjá listakonunni Gíslínu Dögg?

Í sumar vorum við Jóna Heiða Sigurlásdóttir með námskeið listasmiðja náttúrunar  fyrir krakka hérna í eyjum.  Þar fengu krakkarnir kynningu á sænska náttúrufræðingnum Solander og  byggðu þau list sína á verkum hans. Krakkarnir verða með í Solander 250 Bréf frá Íslandi opnuninni í eldheimum 20. október og sjáum við Jóna Heiða um að setja hana upp.  Ég verð með sýningu í maí í Lofoten í Noregi ásamt 2 íslenskum listakonum og 3 norskum listakonum.  Við verðum svo saman í 3 vikur þar sem við vinnum saman að listsköpun okkar.  Svo er sýningin “Konur í sjávarsamfélagi” einnig á dagskrá næsta haust  hérna í Eyjum þar sem einblínt verður á konur í sjávarsamfélögum.  Svo kemur alltaf eitthvað upp sem maður getur ekki séð fyrir.

Myndefni mitt í þessu verki er Sigríður Magnúsdóttir Amtmanssfrú í Sviðholti á Álftanesi. En í Íslandsleiðangri Banks og Solander var teiknuð mynd af Sigríði sem ég nota í tréristuna, enda hef ég í verkum mínum lengi verið að vinna með konur en þó einkum nafnlausar hversdagshetjur fortíðarinnar.

Sigríður klæðist faldbúningi sem er elsta gerð þjóðbúnings á Íslandi, en skautbúningurinn sem Sigurður Guðmundsson málari hannaði var unnin uppúr faldbúningnum á 6.áratug 19. aldar og líklegt má telja að Sigurður hafi einmitt notað myndina af Sigríði Amtmanssfrú við hönnun sína ásamt öðru. Sigurður teiknaði jafnframt skreytingar á skautbúninginn og sótti fyrirmyndirnar í íslenska jurtaríkið í uppdráttum sínum.

Munstur Sigurðar hef ég notað í málverkum og grafík, en þó tekið mér það bessaleyfi að breyta þeim eins og hentar hverju sinni og það einmitt það sem ég hef gert í þessu verki líka.

Ég valdi að vinna verkið í tréristu því það er með elstu prentaðferðum í grafík, en þó hef ég blandað þessari gömlu tækni við nútímatækni í gegnum leiserskurðstækni í Fablab og notaðist við fjórar tréristur í verkinu.

 

Listamennirnir sem taka þátt fyrir hönd Íslands f.v.: Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Viktor Pétur Hannesson, Daði Guðbjörnsson, Laura Valentino, Valgerður Björnsdóttir, Iréne Jensen, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Anna Líndal og Soffía Sæmundsdóttir.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search