Gíslína Dögg Bjarkadóttir listakona verður með bleik grafík verk í tilefni af bleika október til sölu. Hún verður aðeins með 20 eintök og mun hluti söluverðsins renna til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum.
Hér er um grafíkverk að ræða sem er unnið með tveimur photopolymer plötum.
Að þessu sinni notast ég við 2 liti, velvet black með smá gylltu í til að fá þennan mjúka brúnsanseraða lit og antík bleikan.
Myndin með þessum litum er aðeins gerð í 20 upplögum.
Allar myndirnar eru innrammaðar, og eru með ivory rammaefni, sandstone karton og eru með gleri með glampavörn og 70% UV vörn.
Stærð myndarinnar er 15×15 cm en með rammanum 31×31 cm. Myndirnar verða tilbúnar til afhendingar um miðjan október.
Verðið á myndinni er kr:35.000.- og fer 5.000 kr. af upphæðinni til krabbavarnar í Vestmannaeyjum.
Hægt er að panta myndina: gislina@gmail.com eða í síma 862-1133