Skipuleggendur keppninnar ákváðu að fresta viðureigninni vegna hugsanlera erfiðleika sem FVA gæti lent í að koma sér til Reykjavíkur vegna veðurs. En lið FIV keppir í hljóðveri í Eyjum.
Önnur umferð Gettu betur hefst í kvöld klukkan 19:30.
Spurningakeppni framhaldsskólanna er í beinni útsendingu á RÚV núll. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir, dómarar og spurningahöfundar eru þau Ingileif Friðriksdóttir og Vilhelm Anton Jónsson.
Í þetta sinn eru 27 skólar skráðir til leiks sem þýðir að sigurvegari síðasta árs, Kvennaskólinn, situr hjá. Viðureignir kvöldsins eru eftirfarandi:
19:30 Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum – Fjölbrautaskóli Vesturlands
20:00 Fjölbrautaskóli Suðurlands – Tækniskólinn
20:30 Verzlunarskóli Íslands – Menntaskólinn á Egilsstöðum
21:00 Borgarholtsskóli – Verkmenntaskólinn á Akureyri
Lið FÍV skipa þau Sigurlás Máni Hafsteinsson, Rúnar Gauti Gunnarsson og Erika Ýr Ómarsdóttir.
Fyrsta umferð Gettur betur fór fram í gærkvöldi og tryggðu fimm skólar sér sæti áfram í spurningakeppninnar Gettu betur. Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Verkmenntaskóli Austurlands og Menntaskólinn í Reykjavík komust allir áfram.