Handknattleiksdeild ÍBV hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gauta Gunnarsson. Hann mun ganga til liðs við félagið eftir yfirstandandi tímabil.
Gauta þekkja allir stuðningsmenn ÍBV en hann er uppalinn hjá félaginu. Gauti flutti sig um set síðastliðið sumar þegar hann gekk til liðs við KA á Akureyri. Þar hefur hann leikið í vetur og staðið sig með mikilli prýði. Gauti hefur verið í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár.
Við erum afar ánægð með að fá Gauta aftur heim til ÍBV og hlökkum til samstarfsins segir í tilkynningu frá ÍBV.