02.07.2020
Í dag og næstu daga munu starfsmenn Vestmannaeyjabæjar og verktakar mála miðlínur, götukanta, gangbrautir og bílastæði víðsvegar á Heimaey. Vakin er athygli á áframhaldandi framkvæmdum við Heimagötu og Helgafellsbraut. Íbúar og aðrir vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að sýna málurunum tillitssemi við vinnu þeirra.
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar.