Gengið hefur verið frá ráðningu Garðars Sigurjónssonar í starf framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Vestmannaeyja. Mun hann hefja störf 6.september nk.
Garðar er 28 ára gamall, tveggja barna faðir og uppalinn í Garðabæ. Sambýliskona hans er Eyjakonan Sandra Dís Pálsdóttir.
Tekur hann við af Kristjáni Georgssyni sem hefur sinnt því starfi sl. 6 ár með góðum árangri en hann hefur ákveðið að skipta um starfsvettvang.


