Eins og við greindum frá í gær þá hafa Pétur Steingrímsson og Gunnar Heiðar staðið að kótilettukvöldi í Höllinni síðustu ár við góðar undirtektir og heldur kvöldið áfram að stækka með hverju árinu en í fyrra seldust 250 skammtar og nú í ár 321.
Ágóðinn af kvöldinu var afhentur núna klukkan 15 í Höllinni. Í ár voru það Krabbavörn Vestmannaeyja og Hollvinasamtök Hraunbúða sem nutu góðs af og fengu þau hvor um sig 550.000 krónur.
Pétur og Gunnar afhentu Bjarna Ólafi sem er fyrir hönd Hollvinasamtakana og þær Guðrún og Olga fyrir hönd Krabbavarnar

