Flott voru þau í dag sjálfboðaliðar Eykyndill og Björgunarfélags Vestmannaeyja þau voru ekki í vandræðum með að koma út 500 stk af endurskinsmerkjum.
Endurskinsmerki
Ef ekið er með lágu ljósin sér ökumaður gangandi vegfarenda sem er dökkklæddur, ekki fyrr en í 25 metra fjarlægð.
Ef viðkomandi er með endurskinsmerki sést hann aftur á móti fimm sinnum fyrr eða í 125 metra fjarlægð.
Endurskinsmerki er örugg og ódýr forvörn en þau þurfa að vera rétt staðsett. Best er að hafa þau eins neðarlega og hægt er eins.
• Hangandi merki er best að hafa beggja vegna á hliðum neðst á yfirhöfn.
• Límd merki er best að hafa bæði að framan og aftan neðst á yfirhöfn og fyrir miðju. Þau þola þvott við 40°C.
• Ef endurskinsmerki eru orðin máð og rispuð getur endurskin þeirra minnkað og þörf á að skipta þeim út.
Best er að velja utanyfirfatnað, skó og töskur sem hafa endurskinsmerki á sér fyrir börnin. Þá er minnsta hættan á að þau gleymist eða týnist.