Gæsluvöllurinn Strönd verður líkt og undanfarin ár, opinn á meðan sumarlokun leikskólanna stendur yfir.
Hann verður því opinn frá 12.-29. júlí í sumar.
Opnunartími hefur verið frá kl. 13:00-16:00 en til umræðu var að lengja opnunartímann vikuna 26.-29. júlí.
Á fundi fræðsluráðs í gær fór fræðslufulltrúi yfir þá möguleika sem eru í stöðunni ef til greina kemur að lengja opnunartímann.
Fræðsluráð þakkaði fyrir yfirferðina og samþykkti að dagana 26.-29. júlí verði gæsluvöllurinn opinn 9:00-12:00 og 13:00-16:00. Að öðru leyti verður hefðbundinn opnunartími.

