Föstudagur 1. desember 2023
Bóluefni

Fyrstu bólusetningar hefjast í dag í Vestmannaeyjum kl 13:00

29.12.2020

Samkvæmt heimildum Tíguls eru fyrstu skammtar bóluefnis við Covid 19 komnir Vestmannaeyja og á að hefja bólusetningu á Hraunbúðum kl 13 og í kjölfarið upp á deild HSU kl 13:30. Alls koma um 54 skammtar í fyrstu lotu í Vestmannaeyja.

34 einstaklingar bólusettir á Hraunbúum, í kjölfarið fá átta einstaklingar á sjúkradeild HSU bóluefni og svo verða tíu framlínu starfsmenn HSU bólusettir í kjölfarið. Það sem verður umfram það verður gefið eldra fólki í áhættuhóp

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að gera viðbótarsamning um kaup á 100 milljónum skammta bóluefnis frá Pfizer til viðbótar þeim 200 milljónum sem framkvæmdastjórnin hafði áður samið um. Þetta gefur öllum ríkjum sem aðild eiga að Evrópusamstarfinu, Íslandi þar með töldu, kost á að kaupa meira bóluefni frá framleiðandanum. Samningur Íslands um kaup á 80.000 skömmtum til viðbótar frá Pfizer verður undirritaður á morgun. Viðræður framkvæmdastjórnarinnar og Pfizer um afhendingaráætlun standa yfir og verða þær niðurstöður kynntar um leið og þær eru ljósar.

Fyrri samningur Íslands um bóluefni Pfizer kveða á um 170.000 skammta bóluefnis. Með viðbótarsamningnum bætast við 80.000 skammtar og hefur Ísland þá tryggt sér 250.000 skammta sem dugir fyrir 125.000 manns frá þessu fyrirtæki. Pfizer er fyrsta bóluefnið sem fengið hefur markaðsleyfi í Evrópu.

Fyrstu 10.000 skammtar efnisins komu til landsins í gær og bólusetning hefst í dag.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is