KFS startar knattspyrnusumrinu sínu í dag er þeir taka á móti ÍH á Týsvelli kl. 14.00. Þetta er jafnframt fyrsti leikur liðsins undir stjórn Óðins Sæbjörnssonar sem tók nýverið við þjálfun liðsins.
Liðin hafa 10 sinnum mæst áður og hefur KFS fimm sinnum farið með sigur úr býtum, ÍH fjórum sinnum og einu sinni hefur lyktað með jafntefli.

