Laugardagur 17. október 2026

Fyrsti kúhegrinn sem sést í Vestmannaeyjum

Sjaldgæfur gestur vakti athygli í Vestmannaeyjum í dag þegar kúhegri sást á vappi skammt frá Prentsmiðjunni. Þetta er fyrsti kúhegrinn sem vitað er til að hafi sést í Vestmannaeyjum og jafnframt sá fyrsti sem fréttist af hér á landi á þessu ári.

Tígull fékk senda mynd af fuglinum frá vegfaranda um klukkan 14 í dag. Fljótt vaknaði grunur um að þarna væri óvenjulegur gestur á ferð og hafði Tígull því samband við Erp Snæ Hansen hjá Náttúrustofu Suðurlands og bað hann um að skoða myndina.

„Já, mér sýnist myndin vera af kúhegra í vetrarbúningi,“ svaraði Erpur og sendi jafnframt afrit til Yanns Kolbeinssonar, fuglafræðings sem heldur utan um komur sjaldgæfra fugla hér á landi.

Tígull sendi í kjölfarið ljósmyndara sinn, Adda í London, á staðinn. Kúhegrinn var þá enn á svæðinu og náði Addi góðum myndum af þessum sjaldséða gesti.

Fyrsti kúhegrinn í Eyjum

Yann Kolbeinsson segir í svari við fyrirspurn Tíguls að þetta sé fyrsti kúhegrinn sem vitað er til að hafi sést í Vestmannaeyjum og jafnframt fyrsti fugl tegundarinnar sem fréttist af hér á landi á þessu ári.

„Til ársins 2021 höfðu fundist hér 13 kúhegrar, allir nema einn frá árinu 2007, og mér sýnist um það bil 13 til viðbótar hafa sést á árunum 2022–2025,“ segir Yann.

Samkvæmt því hafa um 26 kúhegrar fundist á Íslandi til loka árs 2025, áður en fuglinn sem nú er í Vestmannaeyjum bættist í hópinn.

Yann segir að kúhegrar hafi áður verið mjög sjaldgæfir flækingar hér á landi en komum þeirra hafi fjölgað samhliða útbreiðsluaukningu og stofnvexti í Vestur-Evrópu á síðustu 10–15 árum.

Sérkennileg heimsókn árið 1936

Þótt þetta sé fyrsti villti kúhegrinn sem skráður er í Vestmannaeyjum er til skemmtileg saga af náskyldum fugli sem kom hingað fyrir 90 árum.

Yann segir að fugl af því sem þá var talið undirtegund kúhegra, coromandus, hafi sést í Vestmannaeyjum dagana 18.–30. júní 1936. Fljótlega kom þó í ljós að þar var ekki um venjulegan flæking að ræða.

Fuglinn bar merki sem leiddi í ljós að hann hafði sloppið úr haldi í dýragarðinum í London í maí sama ár og síðan ratað alla leið til Vestmannaeyja.

Frá þeim tíma hefur flokkun fuglanna breyst. Coromandus er nú almennt talinn sérstök tegund, Ardea coromanda, sem á íslensku kallast kvíguhegri, en kúhegrinn ber fræðiheitið Ardea ibis. Alþjóða fuglafræðiráðið IOC færði báðar tegundirnar jafnframt nýlega úr ættkvíslinni Bubulcus yfir í Ardea.

Fylgir gjarnan búfénaði

Kúhegrinn er fremur lítill og þéttvaxinn hegri. Hann er að mestu hvítur í vetrarbúningi, með gulleitan gogg og dökka fætur. Á varptíma breytist útlitið nokkuð og fuglarnir fá gul- eða appelsínugular skrautfjaðrir á höfuð, bringu og bak.

Kúhegri sker sig frá mörgum öðrum hegrum að því leyti að hann heldur gjarnan til á þurru graslendi, túnum og beitilandi. Nafnið vísar til þess að fuglarnir sjást oft í nágrenni nautgripa og annarra stórra beitardýra þar sem þeir tína upp skordýr og önnur smádýr sem fælast undan fótum búfjárins.

Kúhegrinn hefur aukið útbreiðslu sína verulega og samkvæmt Yanni endurspeglast stofnvöxtur og aukin útbreiðsla hans í Vestur-Evrópu nú einnig í tíðari heimsóknum hingað til lands.

Kúhegrinn sem sást í Vestmannaeyjum í dag skrifar því lítinn kafla í fuglasögu Eyjanna – fyrsti skráði villti kúhegrinn sem hingað hefur ratað.

Uppfært kl 16:20: Yann sendi okkur póst með þeim fréttum að rétt í þessu var annar kúhegri að finnast á Reyðarfirði. 

Myndir og myndband hér eru frá Adda London.

 

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search