24.03.2020 kl 02:15
Konan, sem var með undirliggjandi sjúkdóm, er fyrsti Íslendingurinn sem látist hefur af völdum hinnar skæðu kórónaveiru.
Eldri kona með undirliggjandi sjúkdóm lést í gær af völdum COVID-19. Hún er fyrsti Íslendingurinn sem látist hefur af völdum hinnar skæðu kórónaveiru.
„Ég tjái mig ekki um þetta atvik að svo stöddu,“ sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra við Fréttablaðið í gærkvöld, innt eftir viðbrögðum vegna þessara vatnaskila í baráttu Íslendinga við kórónaveiruna og sjúkdóminn COVID-19. Sagði ráðherrann ekki viðeigandi að hún tjáði sig fyrr en þessar upplýsingar kæmu opinberlega fram.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vildi heldur ekki tjá sig er frettabladid.is leitaði til hans í gær.
Er þetta annað andlátið af völdum COVID-19 hérlendis. Fyrir átta dögum lést Ástrali úr sjúkdómnum á Húsavík.
Þórólfur sagði að samkvæmt nýjasta reiknilíkani sé útlit fyrir að faraldurinn hámarki hér um miðjan apríl. Sagði sóttvarnalæknir meðaltalsaukningu sjúklinga vera hvað lægsta hér á landi miðað við önnur Evrópuríki.
Greint er frá þessu á frettabladid.is