Fimmtudagur 8. október 2026

Fyrsti heimaleikur ÍBV á tímabilinu í kvöld

Karlalið ÍBV í handbolta tekur á móti Selfossi í sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu í dag. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og hefst klukkan 18:00.

Bæði lið freista þess að ná í sín fyrstu stig í Olísdeildinni. ÍBV laut í lægra haldi fyrir Haukum, 38:29, á útivelli í fyrstu umferð og er í 11. sæti deildarinnar. Selfoss situr í áttunda sæti eftir 34:30 tap gegn Val á heimavelli.

Alls fara þrír leikir fram í annarri umferð deildarinnar í dag. Auk leiks ÍBV og Selfoss tekur Þór á móti HK á Akureyri klukkan 19:00 og Afturelding fær FH í heimsókn klukkan 20:15.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search